Hönnun og þjónusta

IDEE hönnunarstudio er framsækin teiknistofa sem sérhæfir sig í hönnun og skipulagi fyrir stofnanir, fyrirtæki og einstaklinga ásamt sérhönnunar á húsgögnum og sérmunum fyrir verkefni, smásölu og heildsölu.

IDEE vinnur öll verkefni út frá þörfum notandans og notagildi rýmisins til jafns við fagurfræði og auknu vægi vistvænnar hönnunar. Öll hönnun miðast við að auka lífsgæði notandans og leggjum við mikla áherslu á góða hljóðvist og lýsingu.

IDEE býður viðskiptavinum sínum persónulega og faglega þjónustu.

Vörur

IDEE framleiðir húsgögn og fylgihluti fyrir heimilið undir vörumerkjunum ID Reykjavik og KOSSMOSS.

ID Reykjavík er nýtt íslenskt vörumerki með húsgögn og hönnunarvöru fyrir heimilið. Vörulínur ID Reykjavik sækja innblástur í form byggingarlistar sem og íslenska náttúru en nýting íslenska hraunsins í bland við önnur hráefni gefur vörulínuni sérstaka fágun og verðskuldaða athygli.

Hugmyndafræði KOSSMOSS snýr að því að byggja upp jákvæða sjálfsmynd barna með því að hafa fyrir augum þeirra jákvæðar og uppbyggjandi staðhæfingar um þeirra stjörnumerki. Með því að draga út jákvæðu eiginleika hvers stjörnumerkis er búin til ákveðin mantra fyrir hvert og eitt merki sem getur fylgt barninu í gegn um lífið.

ID Reykjavik facebook og instagram

Kossmoss facebook og instagram

 

IDEE hönnunarstudio tekur á móti viðskiptavinum sínum á 3. hæð í Auðbrekku 30, 200 Kópavogi (gengið er inn bakdyramegin við húsið).

Hægt er að senda okkur tölvupóst á idee@idee.is.

  • Freyja Árnadóttir

    INNANHÚSSARKIKTEKT / EIGANDI

    Freyja útskrifaðist 2014 með BA próf í innanhússarkitektúr úr Marbella Design Academy.

    netfang: freyja@idee.is
    sími: 659 1166

  • Íris Ágústsdóttir

    INNANHÚSSHÖNNUÐUR / EIGANDI

    Íris útskrifaðist 2011 úr Istituto Europeo di Design Barcelona (IED) sem innanhússhönnuður.

    netfang: iris@idee.is
    sími: 697 7006