Borðplötur

ATHUGIÐ: Þessi pistill er einungis til fróðleiks, við seljum ekki borðplötur hjá IDEE.

Úr mörgu er að velja þegar kemur að vali á borðplötum í eldhús og á baðherbergi. Neðangreindur listi gefur smá yfirsýn yfir það sem fæst á Íslandi í dag. Verðbil með mælingu og uppsetningu frá 1 (ódýrt) og upp í 5 (kostnaðarsamast).

Marmari: Náttúrusteinn. Gljúpur og mjúkur. Til í mörgum litabrigðum, vinsælastur hvítur með gráum og jafnvel ljósbrúnum æðum. Viðkvæmur fyrir hita, sýru, blettum. Hægt að halda honum tiltölulega blettalausum með því að bera í hann og þurka fljótlega ef sullast niður. Verðbil 4 til 5.

Fallegur grænn marmari sem er notaður sem borðplata og veggklæðning

Hér má sjá grænan marmara sem er notaður sem borðplata og veggklæðningu.

Þessi hvíti marmari er með sterkum grænleitum æðum og gerir mikið fyrir einfallt eldhús. Athugið að því ljósari sem marmarinn er því gljúpari er hann og þar af leiðandi sér meira á honum með tímanum.

Granít: Náttúrusteinn. Frekar harður steinn. Til í mörgum litabrigðum en vinsælastur í svörtum eða dökkum tón. Ekki ráðlagt að setja hita á granít þar sem það getur verið veikleiki í steininum sem sést ekki berum augum og þar getur hann sprungið. Tekur ekki í sig bletti eins auðveldlega og marmari og rispast ekki eins auðveldlega. Verðbil 4 til 5.

Granít er gott borðplötuefni í eldhúsum þar sem mikið gengur á.

Quartzite: Náttúrusteinn. Kemur annarsvegar mjúkur (mýkt milli marmara og graníts) og hinsvegar harður og þá er harkan töluvert meiri en í granítinu. Mörg litabrigði. Verðbil 4 til 5.

Quartzite (Kvartsít) er oft fallega litríkur með miklar æðar og hreyfingu sem getur komið sérlega vel út á móti einfalldri hönnun.

Quartzite er fallegur bæði ljós og dökkur.

Quartz: Tilbúinn steinn. Niðurkurlaður náttúrusteinn 95% og bindiefni 5%. Quarts er alveg lokað efni og þolir því vel að það hellist á hann litsterkt efni eða sýra. Ekki er ráðlagt að setja heitt á quarts þar sem að það getur litað bindiefnið (geta komið gulir blettir) en dekkri litir þola það betur. Verðbil 3 til 5.

Quartz (Kvarts) getur hentað vel þar sem einfalldleikinn er í hávegum hafður. Hér má sjá quartz með ljósu terrazzo útliti.

Framleiðsluaðferðum á qartz hefur farið mikið fram undanfarin ár og er nú hægt að fá quartz sem líkist náttúrulegum stein.

Risa flísar: Nýlegt borðplötuefni (á Íslandi). Stórar flísar, 6 – 12 mm þykkar. Þurfa að liggja á undirlagi (td. krossviðsplötu). Eins og staðan er í dag er einungis hægt að panta heilar plötur (sem eru ca 150 x 300 cm – breytilegt eftir framleiðanda) og það þarf að skera þær á Íslandi. Til þess að skera þær þarf að teikna þær upp í tölvutæku formi og þær eru ýmist handskornar af fagaðila, laser skornar eða skornar með vatnsþrýstingi (við í IDEE getum aðstoðað með teikningu). Venjulegir flísarar taka ekki að sér að skera þessar flísar til fyrir borðplötunotkun. Þar sem þær eru mjög þunnar er hætta á yfirspennu í plötunni og þær geta sprungið svo þá áhættu þarf að meta áður en ráðist er í að kaupa flísaborðplötu. Kostur þeirra er hinsvegar að þær eru mjög harðar og þéttar og engir blettir festast í þeim, eins eru þær mjög fallegar, líkjast mjög alvöru náttúrustein og halda sér vel. Mikið litaúrval, marmara- eða náttúrusteinalíki, steypulíki ofl. Verðbil er um 3.

Risaflísar hafa verið lagðar á gólf, veggi og borð og kemur það einstaklega vel út.

Keramik: Svipað og flísar, nema kemur tilbúið frá framleiðanda erlendis fyrir uppsetningu. Keramikið er mjög hart efni og þolir allt að 400°C hita svo þær henta vel fyrir þá sem vilja geta sett heitt beint á borðplötuna. Ýmsir litamöguleikar (útlit minnir á matt quartz). Verðbil 4 til 5.

Keramik borðplata innanhússhönnun

Keramikið er mjög hart og þolir hita vel.

Steypa: Vinsælt borðplötuefni í síðari tíð (oft DIY). Mjög gljúpt efni og því líklegt að það taki í sig bletti við daglega notkun. Steypan er viðkvæm og getur brotnað upp úr henni eða komið sprungur og því þarf að kynna sér vel meðhöndlun steypunnar. Nauðsinlegt er að loka steypunni með góðu yfirborðsefni til að lengja líftíma hennar og viðhalda útlitinu. Hún hentar vel í verkefni þar sem útlit á að vera hrátt og ekki of fullkomið. Verðbil 2 til 3.

Steypt borðplata getur komið skemmtilega út og gefur ákveðið iðnaðarútlit.

Corian: Tilbúið efni. Blanda af fínum steinmulning og akrýl. Kostir eru að þetta er algerlega þétt efni og þar af leiðandi 100% bakteríufrítt. Það er einnig hægt að pússa það upp og þá verður borðplatan alveg eins og ný. Fallegast við Corian er að það er algerlega „seamless“ efni, þ.e. samskeyti sjást ekki (nema ef tekin er plata með miklu munstri) og þú finnur alls ekki fyrir þeim við snertingu. Einnig er fallegt að hægt er að fá bæði eldhús- og baðvaska, oft í sama lit, algerlega seamless. Þægilegt að þrífa og umgangast, sér lítið á því. Corian er alltaf 12 mm þykkt efni, og stundum 24 mm (tvöfölld borðplötuþykkt) ef þarf. Efnið er hægt að hitamóta í mismunandi form og hentar því vel í frumleg verkefni. Verðbil 4 til 5.

Corian kemur vel út þar sem sama efni á að flæða ofan í vaskinn. Oft á tíðum sérlega glæsilegt og snyrtilegt.

Akrýlsteinn: Svipað og corian nema þar er 3 mm þykk akrýlsteinaplata þrýstilímd ofan í spónarplötu (margir mismunandi framleiðendur, ekki Corian). Hægt að setja seamless vaska og samskeyti sjást lítið sem ekkert. Veikara efni en Corian (viðkvæmara fyrir höggum) en það er aftur á móti hægt að laga akrýlsteininn með viðgerð (eins og Corian). Verðbil 4 til 5.

Akrýlsteinn er einfalldur og getur komið fallega út með innfelda vaska.

Harðplast: Eitt ódýrasta borðplötuefnið. Samskeyti sjást oftast vel. Harðplast hitalímt á spónarplötu. Harðplastið er vatnshelt yfirborð en spónarplatan undir er það oftast ekki (ekki algilt, spyrjið söluaðila), svo ef raki kemst undir er hætta á vatnsskemmdum og bólgum í efninu. Harðplastplötur eru auðveldar í uppsetningu, ódýrar og endingargott borðplötuefni sem er auðvelt í þrifum. Mikið úrval útlits. Harðplastplötur eru ekki hitaþolnar. Verðbil 1.

Harðplast borðplötur eru langlífar

Harðplast er praktískt borðplötuefni þegar þarf að passa upp á kostnað og endingu.

Fenix: Harðplast með súpermattri áferð. Mjög falleg en frekar erfitt að viðhalda. Fitublettir sjást frekar vel á yfirborðinu og þarf sérstakt þrifefni til að halda plötunni óaðfinnanlegri. Verðbil 2.

Getur komið sjúklega vel út en það þarf að hafa í huga að það þarf mikið að þrífa það og blettir sjást auðveldlega eftir feiti og jafnvel vatn (sem þó er hægt að þrífa).

Gegnheilt laminate harðplast: Plastefni í gegn, 100% vatnshelt. 10 mm þykk plata (oftast svört með mismunandi yfirborði, stundum Fenix). Hart efni, sér lítið á því og endist lengi. Verðbil 2.

Límtré: Náttúrulegur viður límdur saman. Yfirborð lakkað eða olíuborið. Til að sinna viðhaldi þarf að pússa plötuna upp reglulega (sjaldnar ef lakkað, en sér minna á því ef olíuborið). Gefur stundum ákveðna mýkt í rými sem er litlaust. Verðbil 1.

Límtré kemur vel út í eldhúsi. innanhússhönnun

Límtré gefur rýminu oft ákveðinn hlýleika. Hægt að bæsa í mismunandi litum, lakka eða olíubera til að fá útlit sem hentar hverjum og einum.

Stál: Borðplötur úr stáli eru víðast hvar notaðar í iðnaðareldhúsum en hafa ekki náð miklu brautargengi fyrir heimiliseldhús. Stálið hefur samt marga kosti og getur komið mjög vel út í svolítið industrial eldhúsum sem dæmi. Einstaklega þægilegt í þrifum. Til að kaupa sér stálborðplötu er best að láta teikna hana fyrir sig (við í IDEE tökum það að okkur) og láta svo stálsmiðju smíða eftir tækniteikningu. Verðbil 3 til 4.

Stálborðplötur úr ryðfríu stáli - hönnun - innanhússhönnun

Það getur verið töff að hafa borðplötu og vask úr ryðfríu stáli.

Vaskar: Hægt að hafa undirlímdan vask í eftirfarandi plötum: Marmari, granít, quartzide, quartz, keramik, corian, akrýlstein og gegnheilt laminate. Athugið að borðplötubrúnin er samt viðkvæm og ef það kemur högg á hana (td. af pönnu sem skellur í brúnina) getur brotnað upp úr henni. Quartzinn er þá líklegast harðastur og ólíklegastur til að brotna.

 

Söluaðilar á Íslandi (ekki tæmandi listi):

Marmari, granít og quartz:

Fígaró
Rein
S. Helgason
Granítsteinar
Granítsmiðjan
Steinprýði

Quartzite:

Fígaró
Granítsteinar
Risa flísar:
Parki
Birgisson
Vídd

Risa flísar:

Parki
Mood interiors
Birgisson

Keramik:

Parki

Steypa:

Byko
Húsasmiðjan
Múrbúðin
BM Vallá

Corian:

Orgus

Akrýlsteinn:

Fanntófell
Fígaró
Parki

Harðplast:

Fanntófell
BYKO
Húsasmiðjan
Bauhaus
Parki

Fenix:

Fanntófell
BYKO
Parki

Gegnheilt laminate harðplast:

BYKO
Húsasmiðjan
IKEA
Fanntófell
Parki
Patti

Límtré:

BYKO
Húsasmiðjan
IKEA
Fanntófell
Patti
Bauhaus

Previous
Previous

Viðarparket